Skiptu um áramótin

Byrjaðu árið í Skildingi

Fast verð sem vex ekki með veltunni, og við flytjum bókhaldið fyrir þig. Fyrstu 6 mánuðirnir fríir fyrir fyrirtæki sem skipta úr öðru kerfi fyrir 31. janúar 2027.

Engin binding.

6 mánuðir fríirHekla eða Katla, fyrir skráningar til 31. janúar 2027
Við sjáum um flutninginnúr Payday, Reglu eða DK
SKIPTA6tilboðskóðinn fylgir skráningunni
Tengist íslensku bönkunumArion bankiÍslandsbankiLandsbankinnSparisjóðirnir
Reiknivél

Hvað borgar þú í dag, og hvað borgar þú hjá Skildingi?

Payday rukkar 2% af veltu upp að hámarki áskriftarleiðar, og lágmark fyrir launavinnslu. Sláðu inn veltuna og sjáðu verðin hlið við hlið.

Launavinnsla
Reikningar, bókhald og launá mánuði án VSK
Skildingur Katla
6.990 kr.
6.990 kr. með allt að 10 starfsmönnum, 500 kr. á hvern starfsmann umfram það
Payday Allur pakkinn með launum
11.700 kr.
2% af veltu, að lágmarki 4.600 kr. fyrir 1 til 3 starfsmenn og 7.000 kr. fyrir 4 eða fleiri, að hámarki 11.700 kr. Verð lesið 25.10.2026.

Skildingur sparar þér 56.520 kr. á ári.

Verð lesin af payday.is 25. október 2026, á mánuði án VSK.

Flutningurinn

Hvað flytjum við, eftir kerfi

Við flytjum það sem kerfið þitt lætur frá sér.

Gamla kerfiðFlyst sjálfkrafaÞarf útflutning frá þérKemur annars staðar frá
Payday með API-lykliViðskiptavinir, vörur, starfsmenn, reikningar með línum, útgjöld, bókhaldslyklar með RSK-lyklum og allar hreyfingar í bókhaldinuLaunasaga (Excel-útflutningur úr Payday)Bankayfirlit koma frá bankanum
Payday með Excel-skrámPrófjöfnuður og hreyfingalisti, borin saman við prófjöfnuð Payday upp á krónuViðskiptavinir, vörur, reikningar, útgjöld og launasaga sem Excel-útflutningurBankayfirlit koma frá bankanum
DKUpphafsstöður, viðskiptavinir og vörurPrófjöfnuður, skuldunautalisti og vörulisti sem Excel-útflutningurBankayfirlit koma frá bankanum
ReglaUpphafsstöður, viðskiptavinir og vörurPrófjöfnuður, viðskiptamannalisti og vörulisti sem Excel-útflutningurBankayfirlit koma frá bankanum

Nánari samanburður við þitt kerfi

Verð og eiginleikar hlið við hlið, með reiknivél fyrir þína veltu. Verð lesin 25. október 2026.

Fimm virkir dagar

Hvernig flutningurinn gengur fyrir sig

1Þú bókar flutningVið höfum samband, finnum viku sem hentar og förum yfir hvað á að flytja og frá hvaða dagsetningu.
2Þú sendir okkur gögninAPI-lyklapar úr Payday (Stillingar, API-lyklar) eða útflutningsskrárnar úr gamla kerfinu. Lyklunum er eytt um leið og flutningi lýkur.
3Við flytjum og stemmum afUpphafsstaða og hreyfingar fara inn, og prófjöfnuðurinn er borinn saman við gamla kerfið áður en þú færð aðganginn.
4Þú byrjar árið í SkildingiFyrsti reikningurinn heldur númeraröðinni áfram. Bókarinn þinn fær sinn aðgang án viðbótargjalds.

Viltu frekar hreina byrjun? Þá flytjum við aðeins upphafsstöður um áramót og gamla kerfið geymir söguna.

Stillingar / Flytja inn gögn
Flytja inn gögn í Stillingum Skildings: fyrsta skref af þremur, valið milli Payday með API-lykli, Payday með Excel-skrám, DK og Reglu.
Innifalið

Það sem er til staðar frá fyrsta degi

Allt sem fyrirtækið þarf til að vera í skilum, á einu föstu verði.

  • VSK, staðgreiðsla, launamiðar og verktakamiðar skilað til Skattsins úr kerfinu
  • Bankatengingar við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbankann og Sparisjóðina
  • Kröfur í heimabanka án eigin samnings við banka
  • Launavinnsla með launaseðlum og starfsmannaappi
  • Bókari með eigin aðgang, án gjalds á hvern notanda
  • Opið API og vefkrókar
Skil
Skil í Skildingi: VSK, staðgreiðsla, skilagreinar og miðar með eindögum, raðað eftir því sem þarfnast athygli, kemur næstu 30 daga og síðar.
Verð

Verðin eftir 6 mánuði

Hekla
Fyrir einyrkja og smærri rekstur
2.990 kr. á mánuði án VSK
  • Ótakmarkaðir reikningar
  • Stofna marga reikninga í einu
  • Reikningagerð og tilboðsgerð
  • Rafrænir reikningar innifaldir
  • Afgreiðsluseðlar
  • Birgðabókhald

Verð eru án VSK. Engin binding.

Spurt og svarað

Tapa ég sögunni?

Nei, ef hún er til í gamla kerfinu. Úr Payday með API-lykli flytjast viðskiptavinir, vörur, starfsmenn, reikningar, útgjöld, bókhaldslyklar og allar hreyfingar. Úr DK og Reglu flytjum við upphafsstöður, viðskiptavini og vörur. Taflan hér að ofan segir nákvæmlega hvað kemur með.

Bókarinn minn notar Payday. Hvað þá?

Þú býður bókaranum í fyrirtækið þitt með hlutverkinu Bókari, án gjalds á hvern notanda. Bókarinn getur sjálfur keyrt innflutninginn í Stillingum, sótt gögnin um API og unnið áfram eins og áður.

Hvað ef ég sé eftir því?

Þá ferðu. Engin binding, og gögnin þín eru þín: útflutningur sem skrár og opið API hvenær sem er.

Hvað gerist eftir fríu mánuðina?

Þá borgar þú venjulegt verð, 2.990 kr. fyrir Heklu eða 6.990 kr. fyrir Kötlu á mánuði án VSK. Við sendum reikning mánuðinn eftir, og þú getur breytt áskriftinni eða hætt í Stillingum hvenær sem er.

Hvernig fæ ég fríu mánuðina?

Bókaðu flutning, eða stofnaðu aðgang með kóðanum SKIPTA6 og flyttu gögnin inn sjálf(ur) í Stillingum. Fríu mánuðirnir virkjast um leið og flutningi lýkur og sjást í Stillingum undir Áskrift.

Hvert leita ég ef ég festist?

Í skildingur@skildingur.is eða í síma 461 2000.

Bóka flutning

Við höfum samband og sjáum um rest

Við förum yfir málin með þér og finnum tíma sem hentar. Viltu frekar hringja? Síminn er 461 2000.

Payday