Fyrir bókhaldsstofur

Allir viðskiptavinirnir í einu kerfi

Engin notendagjöld fyrir stofuna. Viðskiptavinir sem skipta yfir með þér fá fyrstu 3 mánuðina fría.

30 mínútna kynning á Teams eða Zoom. Engin skuldbinding.

3 mánuðir fríirfyrir viðskiptavini sem skipta yfir með stofunni, kóði BOKARI3
Fyrstu þrírvið flytjum þá fyrir þig úr Payday, DK eða Reglu
0 kr. á notandahlutverkin Bókari og Uppgjör á hverjum viðskiptavin
Tengist íslensku bönkunumArion bankiÍslandsbankiLandsbankinnSparisjóðirnir
Aðgangur

Einn aðgangur fyrir alla þína viðskiptavini

Hver viðskiptavinur býður stofunni inn og þú skiptir á milli félaga í sama aðganginum.

1Viðskiptavinurinn býður stofunni inn í Stillingum
2Hann velur hlutverkið Bókari eða Uppgjör
3Þú opnar félagið og vinnur eins og eigandinn
Stillingar / Notendur
Notendur í Stillingum Skildings: tafla með nafni, netfangi og hlutverki hvers notanda, þar á meðal Bókari og Uppgjör, og hnappurinn Nýr notandi.
Flutningur

Einfalt að skipta úr helstu kerfum

Innflutningurinn í Stillingum sækir gögnin úr Payday, DK eða Reglu. Við flytjum fyrstu þrjá viðskiptavinina fyrir stofuna.

Stillingar / Flytja inn gögn
Flytja inn gögn í Stillingum Skildings: fyrsta skref af þremur, valið milli Payday með API-lykli, Payday með Excel-skrám, DK og Reglu.
Skil

Öll skil á einum stað

VSK, staðgreiðsla, launamiðar og verktakamiðar fara til Skattsins úr kerfinu, raðað eftir eindögum.

Skil
Skil í Skildingi: VSK, staðgreiðsla, skilagreinar og miðar með eindögum, raðað eftir því sem þarfnast athygli, kemur næstu 30 daga og síðar.
Verð fyrir viðskiptavini

Fast verð, engin prósenta af veltu

Keilir0 kr. á mánuði án VSK2 reikningar á mánuði
Hekla2.990 kr. á mánuði án VSKÓtakmarkaðir reikningar og tilboð
Katla6.990 kr. á mánuði án VSKBókhald, VSK, bankar og laun fyrir allt að 10 starfsmenn, svo 500 kr. á starfsmann

Verð eru án VSK, engin binding. Fyrstu 3 mánuðirnir eru fríir fyrir viðskiptavini sem skipta yfir með stofunni (kóði BOKARI3).

Spurt og svarað

Hvað kostar þetta stofuna?

Ekkert. Hlutverkin Bókari og Uppgjör eru án gjalds á hvern notanda, hvað sem starfsfólk stofunnar er margt. Viðskiptavinirnir borga sína áskrift eftir fríu mánuðina, á föstu verði.

Hver er munurinn á Bókara og Uppgjöri?

Bókari hefur fullan aðgang nema að stofna notendur. Uppgjör hefur fullan aðgang nema að launum og notendum.

Mínir viðskiptavinir eru allir í Payday.

Innflutningurinn í Stillingum tekur Payday með API-lykli og flytur viðskiptavini, vörur, starfsmenn, reikninga, útgjöld, bókhaldslykla og allar hreyfingar. Þú keyrir hann sjálf(ur), eða við flytjum fyrstu þrjá viðskiptavinina fyrir stofuna.

Hvernig geri ég ársreikninginn?

Í þínu kerfi, eins og áður. Prófjöfnuður, hreyfingalisti og fylgiskjöl koma úr Skildingi sem skrár.

Hvað með lífeyrissjóði og stéttarfélög?

Skilagreinarnar verða til sjálfkrafa í hverri launakeyrslu, með réttum sjóðum og upphæðum, og eru sendar rafrænt beint úr kerfinu til allra sjóða og stéttarfélaga sem taka við rafrænum skilum. Staðgreiðslan fer til RSK á sama hátt.

Hvernig fær viðskiptavinurinn fríu mánuðina?

Hann stofnar aðgang með kóðanum BOKARI3, eða þú stofnar hann fyrir hann. Við merkjum fría tímabilið á fyrirtækið eftir kynninguna og það sést í Stillingum hjá viðskiptavininum.

Er opið API?

Já. API-lykill er stofnaður í Stillingum hjá hverju félagi, og skjölunin er á skildingur.is/v1/docs.

Bóka kynningu

Bókaðu stutta kynningu

Við höfum samband innan eins virks dags og finnum tíma sem hentar. Viltu frekar hringja? Síminn er 461 2000.

Veldu